14.5.2007 | 17:42
Stór dagur á morgun:
1. Lambaferð hjá Júlíu Katrínu -Stekkum.
2.Byggingarnefndarfundur á Laugarvatni*kross your putts plís*
3.Diskótek í umsjón tengla hjá Ívari Bjarka, sem er þess valdandi að ég kemst ekki á...
4. ...Josh Groban með Lalla,...tengdó fer fyrir mig og ég dansa diskó á meðan
.
5.Helga Guðrún litla byrjar hjá M.S.
Vonandi þurfum við ekki að flagga í hálfa í Leynigarði um helgina .
Bloggar | Breytt 15.5.2007 kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
10.5.2007 | 23:38
Árás og eyru...
Fór í bæinn með báðar stelpurnar mínar um hádegi í dag til að fara með Júlíu Kartínu í eyrna-eftirskoðun. Undir Ingólfsfjalli tókum við eftir því að okkur var veitt eftirför.
Mér datt fyrst í hug að þetta væri frambjóðandi vinstri grænna-suðurkjördæmis, sem legði það á sig að keyra þá kjósendur sem sýndu á sér farasnið til frambúðar, útaf, og tefja för þeirra með því um tvo daga. Þegar bifreiðin nálgaðist meir og fór að blikka ljósunum og hazardinu var ég alveg viss! þetta var X- D,B,S,V eða F. (D.B.S.VotttheFokk)Ég svitnaði og gaf örítið í , hann jók líka hraðann.
Í miðjum Kömbum gaf hann allt í botn, lítill grænn skítugur Skódi læddist frammúr mér og jós yfir mig svörtum reyk...alveg að skíta á sig. Ég leit varlega til vinstri og sá þar litla konu með derhúfu í farþegaframsætinu...hún vinkaði mér eins og brjálæðinur. Ég leit snöggt fram á veginn aftur og þóttist ekki hafa séð hana.
Alla leiðina þvingaði Skódinn mig að komast ekki framúr, var þetta Sturla Böðvars? eða Eyþór Arnalds? Í Hveradalabrekkunni rann Skódinn frekar hratt niður, fór alveg í rúmlega 93 km.klst...Við ostaskerann í Svínhrauninu gaus upp þessi svaðalega prumpulykt...og litla konan með derhúfuna stakk út hausnum..."baunir" hugsaði ég.
Þegar kom að Rauðavatni var ég fljót að beygja inná Breiðholtsbrautina þegar ég sá brjálaða fretfólkið á græna Skódanum taka stefnuna á borgina.
Fórum í IKEA, fundum þar Örn og Emil skælandi í matsalnum,þeir voru búnir að gera nokkrar tilraunir að komast útúr IKEA án þess að þræða alla búðina.
Fórum á Salatbarinn og fengum gott að borða.
Kíktum á Lalla í Álftamýri.
Helga pissaði á bensínstöð...nei ekki Á hana!
Fórum svo til Einars Thor. Júlía Katrín er enn heyrnardauf vegna vökva á hægra, hann vill bíða fram á haust að gera eitthvað...við vonum að hún nái þessu úr sér sjálf í sumar.Hann teiknaði mynd handa henni af rostungi á skeri og kanínu á baksundi.
Fórum heim og elduðum sænskar kjötbollur með tittesylte, brúnni og karpellum.
Horfðum á Júró...mér fannst Eiki fínn.
Ég held að þessi frá Mold...avíu vinni AF ÞVÍ hún var í nælon-nærbrók upp að nafla og það vantaði leður í brækurnar sökum fátæktar í Mold...avíu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.5.2007 | 23:41
Drithöfðinginn hefur talað...
...og því kominn tími á nýtt drit.
Helga á núna bara eitt próf eftir, í dönsku,kláraði stæ. í morgun og kom alsæl heim úr því prófi. Eftir hádegi skrapp hún með Katrínu í Þolló að hitta Ragnheiði sem vinnur þar í golfskála???ég vissi ekki að það væri golfvöllur þar ???
Klukkan hálf sjö í kvöld hringdi hún svo í mig:
Helga: Hæ, ég var á spá hvort ég mætti fara með Loisu til Eyja núna? Dallurinn fer hálf átta.
Ég: uuuu...ha?
Helga: Ææææ okkur langar svo að gera eitthvað sniðugt.
Ég: hvenær kemur þú þá heim?
Helga: við gistum hjá mömmu hennar og komum svo aftur um hádegi á morgun.
Ég: hvenær fer "Dallurinn" á morgun?
Helga: -Kallar á Loisu"hvenær fer Dallurinn á morgun?"-Hann fer átta í fyrramálið,við tökum þá kannski seinni ferðina.
Týpískt af Þyrnirós að pæla í þessu.
Ég: Ókey eru þið með bíl?
Helga: Já og tjald...
Ég: uuuu.???? ...jamm...haldið ykkur fast og svo heyri ég í þér.
Helga: Já gerum það elska þig.
Ég: ég þig sömuleiðis, bæ...
Einstakur karakter þessi dóttir sem gefur lífinu ekkert nema bjarta liti.
Hvað ætli hafi orðið um Katrínu ? Bíllinn hennar er hér fyrir utan...laumufarþegi
?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.5.2007 | 01:04
Ætla að safna...
...gullkornum frá JKL hér,þau hrannast upp í tonnatali þessa dagana.
Í morgun hringdi síminn,ég bað Júlíu Katrínu að svara þar sem ég var með fullt fang af þvotti að raða í Helgu skáp(nema hvað)...hún svaraði og ég heyrði hana segja : "nei hún er sofandi inní Helgu skáp" ég hljóp auðvitað af stað, greip tólið eins og get er í boðhlaupsskiptingum áður en hún skellti á,þetta var meðtengill úr bekknum hans Ívars Bjarka .
Í kvöld sátum við öll að snæðingi nema fyrirvinnan og gæddum okkur á kjúlla, ég fer að spyrja Helgu hvort vinkona hennar sem er að koma úr námi að utan eftir nokkrar vikur hafi enn áhuga á gæjanum sem hún skildi við áður en hún fór fyrir ári,
Helga svaraði því:"ojj nei heldur þú að hún sé þroskaheft?!" Þá byrjar minnsta undrið að syngja ofurfallega : ég er þroskaheft, ég er þroskaheft...ég er þroskaheft...os.frv. Ég bað Helgu vinsamlega að gæta orða sinna í framtíðinni!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.5.2007 | 00:15
Springa ,sprunginn ,sprunkt ...
Fór í kvöld með gömlum bekkjarsystrum á Hafið bláa meðal annars til að eta sjávarfang, fékk mér 3rennu sem samanstóð af humri,skötusel og rauðsprettu mmmmmm... og eplaköku í eftirrétt. Við erum fimm sem vorum í hittingsnefnd 2003 og ákváðum að halda hópinn og hittast reglulega. Erum allar með stór og smá börn samtals 17 stykki frá tveggja til tuttugu og eins
þannig að við náum vel saman...Ég fékk nú samt smá áhyggjuhnút í magann þegar umræða um æðarhnúta, háræðaslit og svuntuaðgerðir braust út
. En ég þaggaði bara niður í þeim með því að sýna þeim tattoo-ið mitt
.Þetta eru allt dásamlegar stelpur og alltaf gaman að hitta þær. Ætlum að hittast í haust og hrista nýju nefndina saman, því næsta bekkjamót er næsta vor á fertugasta árinu okkar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Dritað á plankann
Færsluflokkar
Tenglar
Börnin á E38
DELLURNAR
í lífinu
DRITRÚNTURINN
skemmtiefnið mitt
Myndaalbúm
198 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 30167
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar