6.9.2006 | 17:20
Cityfjord east :)
Hvaðan eru keppendurnir 5 sem eftir eru í Rockstar S.N.?
Tékkið á þessu...
http://boards.live.com/Rockstarboards/thread.aspx?ThreadID=76214&BoardsParam=PostID%3D1212845
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.9.2006 | 22:48
Sætar borðtuskur
Í dag fékk ég óstjórnlega löngun,að fara út í grenjandi rigningunaÞannig að ég klæddi mig eftir veðri og rauk bak við hús með 2 stórar skálar í hendinni,í hamagangi reytti ég 4 kg.af rifsberjum af runnunum...aaaallt of mikið...sagði mamma.Eftir kvöldmat(ýsu í raspi) fór ég svo í Nóatún með Lalla og JKL þar sem við keyptum sykur,tómar krukkur,sótthreinsivökva sigti,bláber og hleypi.Svo fór ég að hleypa 1 ltr. af bláberja-rifs hlaupi,1 ltr. rifs-chili hlaupi og 1/2 ltr.af rifshlaupi,krukkurnar búnar!
Sko...það er meira en helmingurinn eftir af berjum!þannig að rifsber fást gefins á E 38 gegn því að vera sótt á morgun.Þetta hlýtur að bragðast vel því heimilisfólkið sá um að þrífa eldhúsið með því að sleikja allt frá veggjum til sleifa.Meira að segja hundurinn stal borðtuskunum úr þvottakörfunni og var að japla á þeim
þvílík græðgi!Nú er þetta allt að kólna og verður smakkað með ostum og kexi annaðkvöld...verið því þolinmóð í biðröðinni
Bloggar | Breytt 5.9.2006 kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
3.9.2006 | 22:48
Gæsir og glæpamenn
Jæja kallinn kominn heim,svaka þreyttur eftir 8 tíma akstur að norðan.Veiðin gekk ekki vel,aðeins 10 gæsir.Þeir voru með hátíðarkvöldverð eftir kvöldflugið í gær(miðnætti)Lalli bjó til sveppasósu úr ónýtum sveppum,hún endaði í ruslinu.Þá fór hann í fýlu og skellti sér í pottinn á meðan Sverrir grillaði lærið.Þegar hann kom uppúr lá Sverrir í reykmökk steinsofandi og það sem var læri var nú lítill svartur sætur köggull.Það var semsagt enginn,enginn matur í gærkvöldi,geri ráð fyrir að Lalli hafi sníkt handfylli af hundamat hjá MAX,Royal canin,ekki ónýtt það.
Helgin gekk annars vel hjá restinni af fjölskyldunni,fórum á Gretti í gær og Kenny í kvöldmat.Jóhanna mágkona hélt svo lífi í mér til kl.01.00 á msn-i-takk fyrir það ljúfust;)
Einhvern tíma í nótt þegar ég var sofnuð komu óprúttnir glæpamenn inní garðinn minn og stálu bensínlokinu af fjórhjólinu,sem stóð undir svefnh.glugganum.Líklega hafa þeir sprænt í tankinn, allavega ætlum við ekki að taka áhættuna á að komast langt á pissi og stefnum því á það að tappa af því bensíninu eða hverju því sem tankurinn inniheldur.Það er alltaf gaman á Engjaveginum, 24-7 ,þá vil ég sérstaklega þakka þeim sem ganga ofurhægt framhjá glugganum mínum á milli 00.30-04.30 og syngja svooo "fallega"og enda svo lagið á því að brjóta flösku.
Ekki má gleyma að þakka drengnum sem reyndi að setja vélsleðann minn í gang síðast þegar ég var ein heima,fyrst kl. 00.15 og svo á heimleið kl. 05.00.Ég böstaði hann í bæði skiptin með því að rjúka á gluggann og banka,og senda honum mitt illilega frk.Grimmhildur look :P Þá nótt fékk ég hjartsláttartruflanir af stressi,og varð lítið svefnsamt.
Það er bara alltaf eitthvað sem kemur uppá þegar Lalli litli er ekki heima.Nóttina sem seinni skjálftinn kom,var það ekki 2000? þá var hann ekki heima t.d.Ég ætti kannski að fá mér svona ameríska lögregluvernd,þegar ég er "ein"heima?
Í dag fórum við svo í sund,ísrúnt og í Rauðholtið,þar var Sandvíkurfjölskyldan litla og fékk ég að knúsast aðeins í guðdóttur minni,hún er alltaf jafn dýrleg,svo bjó ég til tortillur með heimal.guacamole:P,grjónum,salsa,baunum,kjúkling,sýrðum og ruccola salati,ég er einnþá södd:P.Lalli svæfði svo (sig og JKL)og ég fór út og málaði eina hurð...
THE WEEKEND ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.9.2006 | 23:10
Mannlaus með hamar...
Jæja best að skella inn einu fyrir háttinn,Spurning samt hvenær ég sofna...karlmannslaus er ég alla helgina og verð líklega andvaka fram eftir nóttu,þar til stúlkukindurnar koma sér heim af busaballi.Anna Karen,Vígdísar og Simmadóttir er í pössun hérna,og sú ábyrgð sett á mínar axlir að hún sofni á sínum kodda í þessu húsi,spurning hvort ég ætti að finna koddann núna,hann er líklega týndur eftir fellibylinn inni hjá Helgu árið 2004.Veit ekki hvernig ég á eftir að standa mig með tvær 17 ára því samtals eru þær 34 ára,og þvi orðnar samtals lögráða???Ok ég þarf þá ekkert að hugsa um þær:)
Annars að öðru ...Lalli og Max fóru sem sagt í veiðiferð norður að Mývatni,í slagtogi með öðru pari(manni og hundi)því þeir höfðu af því fregnir að aðal gæsapartýið yrði þar,spurning um að sækja matinn yfir ána,eða fæðið yfir fljótið,tutu norður.
Vegna einsemdar minnar á þessum síðsumarkvöldum fór ég í dag og keypti mér tvo blómvendi,það geri ég alltaf þegar ég er mannlaus...haha mannlaus...þetta eru svona verðlaun til mín frá mér fyrir að vera svona dugleg að vera "ein" heima.Svo tek ég alltaf þvííílíkt vel til,þvæ tíu þvottavélar os.f.v. og nýt svo helgarinnar með JKL og ÍBL,við eldum ekkert!förum bara í bíó, borðum ruslfæði og dinglum okkur.Þannig að þegar upp er staðið,er bara allt í lagi að vera einmanna stundum,þó mér finnist alltaf jafn leiðinlegt þegar Lalli er í burtu :(Við erum svo miklar klessur.
Á meðan Lalli er í burtu,hangir karlmaður utan á húsinu mínu...nebbla málarinn ...já, það er verið að mála slotið.Þið piparjónkur!kíkið endilega í kaffi og skoðið gripinn,því ég veit að hann er piparjón,hann verður líka örugglega ógó ríkur þegar hann er búinn ;)
Jæja best að hætta núna og fara að negla fyrir allt með gleri...ég er sko þvílíkt þjófahrædd sonna "ein"heima,hamarinn gæti ég svo haft á náttborðinu,bara sonna just in case.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
31.8.2006 | 18:03
Sniff,sniff...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Um bloggið
Dritað á plankann
Færsluflokkar
Tenglar
Börnin á E38
DELLURNAR
í lífinu
DRITRÚNTURINN
skemmtiefnið mitt
Myndaalbúm
190 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar