30.8.2006 | 23:23
Krullaðir strumpar.
Þegar ég var að koma úr búðinni í dag og keyrði austur Engjaveginn,sá ég að á móti mér stefndi skrúðganga.Þetta var tónlistaskólinn á leið í nýtt húsnæði.Þar sem marseringin var stödd við húsið mitt,ákvað ég að fara Seljaveg-Mánaveg- Sigtún...ég stoppaði aðeins á Engjavegshorninu og horfði á móttökurnar,lít til hliðar og sé konu með 2 stráka labba á undan mér(á móti göngunni).
Þennan bakhluta kannaðist ég heldur betur við,mikið krullað hár í allar áttir og húfa sem stóð uppúr flóðinu.Ég skaut hausnum útum gluggann og æpti með svona Mr. Bean rödd:Hæ strumpur! :) Hún leit við og horfði á mig með undrunarsvip...þetta var allt önnur kona!!!"úpps...fyrirgefðu...ég hélt þú værir Guðfinna"aulaði ég útúr mér,vá hvað ég varð samlituð bílnum ,RÚSTrauð!
Ooohhh ég hefði átt að stútera botninn á henni betur ,eða bara göngulagið!kommon það hefur enginn sama göngulag og krullan mín.
Ég bara vona að þessi lögreglumannsfrú sem varð fyrir þessu andlega ofbeldi,fyrirgefi mér.
Og Krulla mín sjáðu bara hvað ég sakna þín :(
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.8.2006 | 13:48
Asskakið...fljúgandi diskur.
Ég er komin með botox í efri vörina.Við JKL vorum að kasta plastdisk á milli í morgun og æfa okkur að grípa þegar diskurinn flaug af þvílíku afli í smettið á mér.Mamman fékk tvö göt á vörina,með tilheyrandi blóði og bólgum,JKL fór alveg í kerfi knúsaði bara mömmu sína í kaf og sagði "asskakið"um 30 sinnum.Nú er ég eins og sílikonprinsessa eftir misheppnaða aðgerð!
Við HGÞ áttum í viðræðum í gær,eitt sem þar kom fram:
Helga: mamma fær maður ný númer,ef það er klippt af bílnum?
Ég: nei,nei.
Helga: hvað þá gert?
Ég: þau eru bara geymd á löggustöðinni,og svo sækir þú þau.
Helga: En þau eru ónýt.
Ég: nei þau eru skrúfuð af Helga mín.
Helga: Óóóóó...haha ókey.
barnslegt gullkorn frá minni annars gáfuðu 17 ára dóttur :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
23.8.2006 | 18:36
Hann býr í Kopavoji
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.8.2006 | 15:21
Hann á afmælí dag :)...
Þessi fallegi drengur á 35 ára afmæli í dag.
Til hamingju með daginn ástin mín
Sjáumst á Rauða húsinu í kvöld
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
20.8.2006 | 22:36
Rauðholtsgrill
Helga Guðrún með Dýrleifu Nönnu,Ívar Bjarki með Júlíu Katrínu og Urður með Unu.
Þarna eru fallegustu börnin saman komin í grillveislu í dag,ég á helminginn af hrúgunni og nokkur % af hinum helmingnum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Dritað á plankann
Færsluflokkar
Tenglar
Börnin á E38
DELLURNAR
í lífinu
DRITRÚNTURINN
skemmtiefnið mitt
Myndaalbúm
190 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar