18.9.2006 | 23:10
Árborgarar...
...Flottir í nýjum búningum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.9.2006 | 23:18
Lömbin þagna.
Ég verð alltaf gríðarlega sorgmædd þegar ég sé lambaflutningabílana,keyra í gegnum bæinn á þessum árstíma.
Stútfullur bíll af litlum sætum lömbum,sem troða sínum ósviðnu kjömmum á milli rimla tengivagnsins í sinni hinstu ferð,draga þau íslenska haustloftið ofan í litlu lungun sín,og nálgast endastöðina óðfluga.Hvað hugsa litlu greyin þegar þau fara yfir Ölfusárbrú?-kannski-"vá ...þetta er ekki eins erfitt og hjá geitunum þremur,þær þurftu að eiga við risann,nú komumst við í grasið græna handann brúarinnar án þess að hafa neitt fyrir því ...gimmí fæf"
Þessar litlu gærur sem okkar ungviði fékk að kyssa og strjúka í vor,áður en þau voru send til fjalla í fitun eins og Hans og Gréta forðum.
Ohhh...ég held ég hafi kjötsúpu á morgun:Þ
Og á meðan ég man...hver er ykkar uppáhalds lambaréttur?
Sá í gærkvöld þátt um 40 ára sögu sjónvarpsins...
...þar voru sýndir bútar úr gömlum barnaleikritum...
...af hverju sýnir sjónvarpið ekki Karíus og Baktus,Hálsaskóginn og Kardimommubæinn á 5 ára fresti?þarna voru líka fleiri verk sem gaman væri að sjá,JKL var dolfallin yfir þessu þó að í smábútum væri(ég líka).
Hafið það gott lömbin mín ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.9.2006 | 22:47
Afsakið hlé
Hleðslutækið ónýtt,þannig að ég er á síðustu mínútum í tölvunni í bili,nýtt tæki í panti frá úklöndum(kannski fæ ég Helgu tölvu ef ég bið fallega)hennar tæki passar ekki í okkar ...bless í bili lestarkrúttin mín :*
p.s. Notið nú tækifærið og skrifið í gestabókina,þið sem kíkið reglulega ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.9.2006 | 16:17
Hundfúl nótt
Það er búin að vera þung flugumferð geitunga hér innandyra s.l. daga,það liggur við að andrúmsloftið sé eins og á hárgreiðslustofu,stríðsáhaldið hefur nebbla verið hairsprey
Í nótt dreymdi mig að geitungur hefði stungið mig í neðri vörina...það var bara ekkert vont!
Ég var mannlaus í nótt þar sem L.H.bauð strákunum í vinnunni á Argentínu og djamm,auðvitað kom eitthvað uppá!Max (HUNDURINN HANS LALLA!)stakk af í miðnæturútipissinu"$%...arg...#&...fyrst fór ég einn labbirúnt að leita í greeenjandi rigningu,svo fór Helga einn bílrúnt,kom við á löggustöðinni og tilkynnti hund á flótta,en...enginn Max fannst í nótt.Ég var andvaka að hlusta eftir gelti til 3.Óþekktarormurinn gelti svo hér fyrir utan kl. 6.30 í morgun,hann var voða glaður þegar ég skammaði hann!Hann sefur núna eftir ævintýri næturinnar?Nú fer ég að setja næturleyfisbann á Lárus.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.9.2006 | 23:38
Ökuníðingar og greidd atkvæði
Jæja fundur hjá skipulagsfulltrúa á Laugarvatni á morgun,krossa putta allir sem vita um hvað málið snýst...
Ég fór sjálf á foreldrafund í morgun,góður fundur með nýjum kennara Ívars Bjarka.Hún lofar góðu enda hef ég öruggar heimildir fyrir því að hún er afbragðs kennari.Það var 50 % mæting foreldra sem mér finnst frekar slappt.Ég bauð mig fram sem tengil í bekknum í vetur og óskaði eftir því að allir meðtækju Beggó (Simmasystur) sem starfsystur mína,hún gat ekki mætt og því ekki andmælt og var hún ráðin með öllum greiddum atkvæðum.Ég hringdi svo í hana í dag og sagði henni að fólk hefði krafist þess að hún yrði tengill...þá varð hún voða glöð.Við ætlum að eyða heilli helgi saman í oktober,einhverstaðar í Sælingsdal??held ég það heiti,fáum okkur þá rauðvín í langt í burtanistan og ákveðum hvað börnin geri sér til skemmtunar í vetur,það verður fróðlegt.Meir um það síðar.
Ég leitaði þvílíkt mikið að debetkortinu mínu á mánudaginn,fann það á endanum úti í ruslatunnu,innan um sunnudagspurusteikarafganga og Júllaafmælisafganga *æl*hafði varla lyst á að kaupa í matinn með því...jú auðvitað þvoði ég það og mig!
Jóhanna og Dýrleif Nanna komu í heimsókn í hádeginu,það er hægt að horfa á þetta barn endalaust,beautyqueenTakk fyrir komuna stelpur og Lush-ið
250 bílar mældir á mælum vegagerðarinnar í ágúst á yfir 150 km. hraða,bara á kjalarnesvegi!Hvað er að fólki!!!Ég verð brjáluð þegar ég heyri svona.
Viðtalið við strákinn og foreldrana sem var í kastljósi í kvöld, ætti að sýna í öllum bíósölum borgarinnar fyrir mynd, í staðinn fyrir kók-auglýsingu og hana nú!
Það hlustar enginn á einhverja umferðarráðskellingu sem kemur með sömu áherslur og Óli Þórðar. gerði í 50 ár.Ef þið skiljið ekkert í þessum pirring í mér horfið þá á Kastljós kvöldsins á netinu.
*Andvarp*ég sem hélt að ég hefði ekki frá neinu að segja,ætlaði bara að segja:hæ
Allir svo að taka þátt í átakinu "Magna heim"ég vona að hann verði ekki Súpernóvi,allt og góður fyrir þá.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Um bloggið
Dritað á plankann
Færsluflokkar
Tenglar
Börnin á E38
DELLURNAR
í lífinu
DRITRÚNTURINN
skemmtiefnið mitt
Myndaalbúm
190 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar