Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Lalli...

...er að fara til Póllands í nótt.

Hann er að fara á krónhjartarveiðar, sem þýðir að næstu helgi á Bambi enga foreldra.


Voff !

Tók smá myndasyrpu af Max áðan, ég er búin að komast að því að hann er stilltasta módelið mitt. Ég bað hann að leggjast: "alveg niður!...bíða!". Svo þegar ég vildi fá aðra pósu sagði ég honum að setjast og endurtók svo :"alveg nið..." Hann var alveg kyrr á meðan ég skaut á hann.

Annars átti ég bara að skila nýjárskveðju til allra ferfættu vina hans, sem lesa þetta. Voff voff Tounge.

 

max


.

 

 

GLEÐILEGT

 

 

 

 

2008

 

 

 

 

MEGI ÞAÐ VERÐA YKKUR

 

 

LJÚFT OG FULLT AF

 

 

FALLEGUM ÆVINTÝRUM.

 

 

 

 

 

 

 

IMG 4176

Eyrabakki í gær

 

 

Ölfusá

desember

 

 nóvember

 

oktober

 

september

 

ágúst

 

júlí

 

júní

 

maí

 

apríl

 

marz

 

febrúar

 

janúar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Var að koma úr kirkjugarðinum aaalein...

...var að prufa nýja þrífótinn minn.

IMG_4107

Heppin að ná þessum norðurljósum, þau lýstu í 5 mínútur,og hurfu svo.

IMG_4111

Þarna hvíla amma og langamma.

IMG_4117

Krapinn í ánni gaf svona rjómablæ, tekið á 15 sec.

IMG_4118

IMG_4120

Bara nokkuð sátt með fyrstu næturmyndirnar mínar Smile.


I've got the power...

Það er komið rafmagn í Leynigarð, þar verður hlýtt og kveikt á jólaseríu LOKSINS þessi önnur jól hússins í Hveramýri.

Takk Guð Wink.

14 mars 2006:

mars-apríl 5 2006 075


Áðan var...

...skemmtiþátturinn "með Loga í beinni". Meðal gesta voru Kolbrún Halldórsdóttir sem dásamaði aðfangadags kvöldmatinn sinn svo mikið að Logi hvítnaði upp. Steikin samanstóð af grænmetissulli innvafið í hvítkál með sveppasósu Sick. Kolbrún varð hin argasta þegar Logi fór að grínast henni, hann spurði m.a. hvort grænmetisætur fengju ekki oftar vindverki en þeir sem ætu kjöt. Hún brást hin versta við og fór í fílu Angry, enda ekki við öðru að búast af fílupúka.

Svo kom annar gestur, Pétur Jóhann... hann spurði hvort ekki væri hægt að minnka snjóflögurnar sem féllu á gestina í þættinum, þáttarstjórnendur brugðust við þessu með því að hella úr c.a. einum svörtum ruslapoka ofan úr lofti beint í fangið á kauða sem sat eins og engill, hvítur frá hvirfli til ilja og brosti sínu fegursta, hann varð snögglega blindur því gleraugun fylltust af snjó, þvoglumæltur spýtti hann útúr sér því sem kemur öllum í jólaskap. Þannig tók Pétur Jóhann við platínuplötu í beinni útsendingu...eins og snjókall.

Hér kemur svo pointið...hefði ekki verið skemmtilegra ef Kolbrún hefði fengið góssið? Jú, en hún er kona Kissing.

 

 

Mynd af Ölfusánni í dag:

IMG_3819-1

 

 

 

Guð gefi ykkur gleðileg jól, kærleik og frið.


Tengdamamma kemur í heimsókn...

Vann gullborða fyrir bestu myndina í Þemakeppni á ljósmyndavef, þemað var "Tengdamamma kemur í heimsókn" Fékk meðaltalseinkunn 7.2, 225 greiddu mér atkvæði Smile sú sem var í 2 sæti fékk 5.9. Ég átti nú ekki von á þessu frekar en Linda Pé, hér um árið *tár* en allar myndirnar voru líka lélegar. Mín úr fokus og allt. Þetta er sem sagt Helga Guðrún í aðalhlutverki og heitir myndin "...og ekkert múður!" Ég fékk líka ágætis komment á hana Joyful.

getimage

 

 

 

 


Þessi dagur er einn sá besti á árinu...

Jóhanna mágkona á 25 ára afmæli, til hamingju með daginn elskan.

Foreldrar mínir eiga brúðkaupsafmæli í dag, til hamingju með daginn elskurnar.

Júlía Katrín á 4 ára skírnarafmæli í dag, til hamingju elskan.

Emil kom í 1. sinn á Engjaveginn í dag. Takk fyrir komuna mæðgin.

SVO FENGUM VIÐ LANGÞRÁÐANN RAFMAGNSREIKNING Í DAG....ÍÍÍÍHA...Wizard

++++++++++++++UPPFÆRT+++++++++++++++

Ég stóðst ekki mátið og fékk að mynda þennan flotta jólaálf í dagWink.

Þetta er hann Emil Vilbergsson nýjast frændi minn.

 

 

 

jólaemil

 


Jörðin hnerrar og hóstar.

...en ég læt ekki bugast. Max gengur hér um gólf urrandi eins og alvöruvarðhundur. lítið hægt að nota hann í þessu tilfelli. Júlía Katrín var að sofna þegar síðustu stóru gengu yfir fyrir tíu, ég þorði ekki annað en að opna hurðina hjá henni og þá spurði hún: mamma hvenær hættir þetta svona?": ...og ruggaði sér í rúminu. Ég vona að fröken jörð fái sér olíusopa fyrir nóttina og hósti minna.

Júlía Katrín bauð mér í kaffi og smákökur í dag á Glaðheimum.

Ragna kom í dag og sagði mér horrorsögu um heimferð frá D.K.

Dísin mín fer til Boston á morgun í vikuferð, skilur mig eina eftir á skerinu með vælandi svaramanni Pinch.

Góða ferð "litla vinkona" og skemmtu þér best! ...God hvað mig langar ekki með! Whistling

Varð bara að koma þarsíðustu helgi niður á lægra plan. Annars er ég komin í jóladritfrí hér með er með hugan við annað en að pikka. Læt það duga að kommenta hjá vinum og vandamönnum. Er að fara í sörubakstur og jólakortaföndur, þannig að ...

Ef eitthvað marktækt gerist og ég sé mig knúna í að ræða það þá geri ég það.

Það sem framundan er :

Smá vinna í Leynigarði(vonandi rafmagn fyrir jól)

Afmælisveisla Jónasar Hallgrímssonar(hann var bróðir formóður minnar Rannveigar Hallgrímsd)

Jólahlaðborð x2

Jólatónleikar x3

og svo allt hitt skemmtilega.

Læt að lokum nokkrar myndir fylgja ...

Það fer allt í vitleysu ef ég reyni að stækka myndirnar þannig að ég hef þær bara svona... það er hægt að tvísmella á mynd  til að stækka...mútta Wink

IMG_3062

 

 

 

IMG_3059

 

 

 

IMG_3145

 

 

 

 

 


Helgin:

Laugard.morgun: afinn kom með rúnstykki og Týndur hundur...

Googlaði rúnstykki Errm

... fórum í skírnarveisluna hans Emils á Högnastígnum eftir hádegið. Hann var skírður Emil Tounge sem kom mér skemmtilega á óvart. Sætastur var sofandi þegar við komum, svo þegar hann vaknaði var nátt.lega slegist um hann. Ég fékk ekkert að hnoða í þetta skiptið Crying. Fórum þaðan sæl og södd...takk fyrir okkur Emil sæti og foreldrar!

Þurftum að afboða okkur í afmæli hjá Frikka mág og gefa Helgu og Ívari miðana sem við vorum fyrir löngu búin að kaupa á Pabbann.

Fundinn hundur...

ágúst 2007 097

Myndakvöld K.k.Selfoss hófst kl 21 á laugardagskvöldinu, nýliðinn Lárus 1. bassi mætti ásamt ektakvinnu og fengum við að hanga undir höndum foreldra minna. Þegar ég var yngri fórum m&p oft á svona myndakvöld, þá hélt ég að allir kórfélagarnir kæmu með albúmin sín og hjálpuðust við að raða ferða-og fjölskyldumyndum, og dást af barnabörnum og oflýstum tjaldútilegum. Þarna komst ég að öðru... sem ekki verður ritað 18+ FootinMouth. Þetta er skemmtilegur félagsskapur með góðu fólki og flesta hef ég þekkt frá blautu barnsbeini. P.s ég er klappstýra hjá 2. tenor og 1. bassa!

 

23.30 á laugardagskvöldinu stungum við kórinn af og héldum heim til Þóru Jóns. í fertugsammli. Þar var gríðarlegt fjör ...sungið, dansað,drukkið og hlegið til kl. 4.30. Við Lalli gáfum henni hárkollu ásamt Örnu, Vigni, Önnu og Villa. Nú er komin pressa á okkur Önnu að fá okkur hárkollur svo við séum eins og Arna og Þóra í nýstofnuðum klúbb "sítt að aftan"Cool.

Gærdagurinn fór í "ekkert"! ...Jú drusluðumst til að henda rollufót í ofninn...

Horfði á EDDUNA í gær Egill mæ es!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Dritað á plankann

Höfundur

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

 

 

Lestur þessi er alveg á þína ábyrgð,ekki er hægt að höfða mál við höfund síðunnar,verðir þú fyrir einhverskonar áfalli við lesturinn.Hverskyns bölv og ragn er með öllu óheimil,þó má gera undantekningu með óskiljanlegm dulyrðum. Góða skemmtun.

A.T.H. Nýtt póstfang:

guggasig@internet.is

MSN:

guggalugg@hotmail.com

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • des 08 080 copy copy
  • des 08 079 copy
  • des 08 078 copy
  • des 08 077 copy
  • des 08 072 copy
  • des 08 069 copy

Nýjustu myndböndin

Frænkurnar rokka

Júlía 2 hluti.

júlí 07 217

júlí 07 220

júlí 07 219

239 dagar til jóla

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband