Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Vellukkuð leiðindastund með mömmu:

Lékum okkur aðeins í kvöld, studioið samanstóð af BYKO kösturum, álpappír, halogenlampa, og drendúk úr húsasmiðjunni...annnað þurfti ekki á þessi fallegu módel. Þau voru mis-tilhöfð en útkoman ágæt, ATH þetta er bara prufa uno!

Arrrggg!#4$#%&/#"!!! var búin að setja fullt inn TVISVAR og allt datt út!

gugg@studio (2)

1.

 

 

gugg@studio (4)

2.

 

 

gugg@studio (9)

3.

 

 

gugg@studio (17)

4.

 

 

gugg@studio (22)

5.

 

 

gugg@studio (25)

6.

 

 

gugg@studio (29)

7.

 

 

gugg@studio (39)

8.

 

 

IMG_2602

9.

 

 

IMG_2620

10.

 

 

IMG_2646

11. (love this one)

 

 

IMG_2658

12.

 


Hún sver sig í ættina.

 Júlía Katrín er veik heima með hita og hálsbólgu, þetta er í fyrsta skipti frá því tappað var af eyrunum og nefkirtlar voru teknir í Mars að hún veikist. Hún var frekar lítil og heit í gær en er hressari í dag og nærri hitalaus. Alltaf þegar krakkarnir veikjast sæki ég glaðning í búðina. Fyrir valinu í dag var leiguspólan Skoppa og Skrítla í Þjóðleikhúsinu. Henni finnst þær æðislegar þó hún hafi bara séð 1 og 1 lag með þeim í sjónvarpinu. Mér finnst þær nú frekar smábarnalegar en það er allt í lagi, þær eru fallegar og góðar. Ég horfði nú ekki á með henni en í miðri mynd tekur Júlía Katrín uppá því að bresta í skellihlátur...þá meina ég kafnúrhlátri!. Stuttu síðar heyrist í Skoppu : "Skrítla varstu að prumpa?" þetta hláturkast sannaði það að hún er með hinn eina sanna FlúðafrethúmorLoL.

 

Skamm Géorg brúskur!

                                                       *Hot news*

 

Helga var að hlusta á Edith Piaf áðan þegar heyrist í Júlíu : Hey þetta er lagið sem mýsnar syngja í Badda grís Smile...spáið í það franskt lag sem er sungið af músum á eldgamalli vídeóspólu. Gáfurnar fljóta hér um eins og Þjórsá.


Það var...

...einhver ævintýraleg birta við kirkjuna áðan... sól ,regnúði og þessi fallegi sterki regnbogi algjört Canon moment Wink

 

Selfosskirkja


Andrea Bocelli í kvöld.

Förum með mömmu og pabba í Egilshöllina, ég á tvo diska með honum og fíl'ann vel Smile.

 

 

 

 

 


Myndir dagsins:

Jæja þá er þessu lokið, ég er komin með nýtt verkfæri í hendurnar þökk sé þessu námskeiði.

 

 

IMG_0216

 

 

 

 

 

IMG_0252

 

 

 

 

IMG_0265


Námskeiðskvöld 2.

Nú var farið í ýmsar brellur og tækni í sambandi við myndatökuna sjálfa og líka farið yfir nánari stillingar á hverri vél. Enduðum svo á að fara í studíoið hans Pálma og spreyta okkur í portret-tökum. Svo skemmtilega vildi til að Hjalti minn fyrrverandi tengdasonur bauð sig fram eftir mikið suð í kellunum sem módel...afbragðsmódel get ég sagt, Siv Friðleifs þurfti að víkja sæti fyrir honum Tounge. ATH þessar eru alveg óunnar,ekkert crop eða þannig Wink...beint úr kúnni.

IMG_0179IMG_0175

Ég tjúnnaði hann upp með þessum hatti.LoL


Ljósmyndaranámskeiðið hafið...

...fyrsta kvöld af þremur var í gær. Fer svo á morgun og hinn.

 Þetta er mjög lærdómsríkt námskeið, allavega lærði ég helling í gær. Hann fór inná allar helstu stillingar á vélinni sem ég kunni náttl. ekkert á enda með vikugamla vél. Svo rauk ég auðvitað beint út eftir hádegi að taka myndir...æfa mig Tounge.

IMG_0057

Við Hellisskóg, þarna tek ég á sem minnstum hraða

 til að fá mýkt í vatnsfallið án þrífóts.

IMG_0099

Brúsi frændi, held að ég hafi

gleymt að setja hann aftur á sinn stað Blush

IMG_0104

Lalla fannst þetta undarlegir tómatar LoL.

IMG_0109

Þreyttar hjólbörur Sleeping.

IMG_0117

Í gróðurhúsinu í R9.

IMG_0122

Þessir pósuðu svo flott Halo.

 

IMG_0126

Og hvað er þetta? Woundering.


Prag já...

...var frábær!

 Ofsalega falleg borg með stórbrotnum byggingum í öllum stílum. Fórum í göngutúr með Pavel í 3 tíma og hann sagði okkur allt og sýndi. Sumar byggingarnar voru með holur eftir byssukúlur(púður). Við skoðuðum gamla bæinn, hluta af þeim nýja, gyðingahverfið þar sem eitt húsið er með feigum bekk...það er, enginn má setjast í hann nema hann óski sér dauða innan árs. Við settumst ekki! Þessi ganga var ótrúleg og algjör hálsrígur!

Ég mæli sko með þessari borg hún er sú fallegasta sem ég hef séð...og maturinn allgjört slef!Wink.

 

Nú stikla ég á STÓRU um ferðina...annars er það eiginlega"what goes on in Prag stay´s in Prag"Whistling:

 

Ég fékk kúlu á hausinn í Keflavík.

Flugvélin lenti mjöööög harkalega á Tékklandinu.

Simmi rak sig í glugga og datt út um hann.

Það var hlegið.

Ég tók Chaplin hopp út úr búðunum.

Pavel lét mig borða 1kg. af djúpsteiktum osti.

Það var grenjað úr hlátri.

Strákarnir(4)drukku 28 bjóra+gin á meðan við Vigdís villtumst í mollinu.

Lalli rataði útum allt.

Og allir eltu hann.

Í Prag var mikið af ófríðu fólki.

Og mjög lítið af lituðu fólki.

Við borðuðum í helli.

Lalli fór með okkur Vigdísi eitt kvöldið í rómantíska 4 tíma siglingu upp og niður Moldá.

Á meðan var Simmi heima með steinsmugu.

Þegar við komum í bátinn fylltumst við skelfingu...eins og sardínur í dós.

Reyndum að kasta okkur útbirgðis.

En áin var of gróðursæl.

Maturinn var óætt buffet...við fengum okkur bara ostasneiðar á 1 disk þrjú saman.

En þar var til gin og tonic.

Í stuttan tíma.

Lalli kallaði okkur "first and second wife"

Það var hlegið.

Svo hittum við Simma kúk og fórum út að borða.

"Við erum vinkonur jahá."

Við fórum of langann rúnt í Metro.

Ég kenndi þjóni að segja... ljótt.... Wink mamma.

Við fórum rúnt í hestvagni.

Orri sótti okkur á flugvélinni sinni og kom okkur til rétts lands...Takk Orri!

 

 

 

Nú þarf ég að fara að sofa!

 

 

Prag okt 07 008

Lalli reyndi að ná Simma upp.

 

 

 

 

Prag okt 07 018

Vigdís Lalli Simmi Siggi Kristinn Helga og Eva.

 

 

 

 

Prag okt 07 040

Lítill krúttkastali, vantaði bara skvísuna með löngu fléttuna útí glugga.

 

 

Prag okt 07 063

Hestvagninn okkar og ekillinn bak við þessa rauðu.

 

 

Prag okt 07 100

Útsýnið á Moldánni.

 

 

Prag okt 07 080

Lalli and second wife uppá dekki.

 

 

Prag okt 07 123

 Gellur á Resturant BAROCK.

 

Prag okt 07 148

Veitingastaðurinn í hellinum.

 

 

Prag okt 07 158

Þarna er Vigdís búin að vigta töskurnar og komast að því að hún á 5 kg laus...hún rauk út úr flugstöðinni í búðirnar um miðja nótt af því fluginu seinkaði um 1 klst......NEILoL


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Dritað á plankann

Höfundur

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

 

 

Lestur þessi er alveg á þína ábyrgð,ekki er hægt að höfða mál við höfund síðunnar,verðir þú fyrir einhverskonar áfalli við lesturinn.Hverskyns bölv og ragn er með öllu óheimil,þó má gera undantekningu með óskiljanlegm dulyrðum. Góða skemmtun.

A.T.H. Nýtt póstfang:

guggasig@internet.is

MSN:

guggalugg@hotmail.com

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • des 08 080 copy copy
  • des 08 079 copy
  • des 08 078 copy
  • des 08 077 copy
  • des 08 072 copy
  • des 08 069 copy

Nýjustu myndböndin

Frænkurnar rokka

Júlía 2 hluti.

júlí 07 217

júlí 07 220

júlí 07 219

222 dagar til jóla

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband