Það er rigning og myrkur og meinlegir skuggar á Mýrdalssand'og hvergi skjól að fá...

...það er yfirgefinn bíll út'í vegakant'o hvergi hræðu neinsstaðar að sjáááá....

 

Frábær dagur á enda, var alveg að fíla rigningarskömmina í tætlur þó ég hafi ákveðið í gær að fara í berjamó í dag. Hugsaði bara að í næsta þurrk verður rykið búið að skolast af berjunum og þau orðin sætari, stærri og safaríkari, þá fer ég! Tounge

 

Í gær byrjaði ég að lesa Leyndarmálið, jahérnameginn þó ég sé ekki komin langt með hana þá er þetta stórmerkileg bók sem ég trúi að eigi eftir að hafa áhrif á hugsanir mínar, ég er meira að segja byrjuð að spyrja mig þrisvar á dag"hvernig líður mér?".FootinMouth

 

Þið sem ekki hafa lesið hana getið fengið hana lánaða hjá mér þegar ég er búin...með því skilyrði að skila strax að lestri loknum. Það er í lagi að koma þessari tilkynningu á framfæri af því ég er búin að læsa síðunni, aðeins fáir útvaldir vinirWink.

 

Skólasetning hjá krökkunum á morgun Ívar Bjarki að fara í 7.bekk og Helga Guðrún að hefja sitt þriðja ár í framhaldsskóla, vá hvað þetta líður hratt. Júlía Katrín fer í 1. bekk þarnæsta haustBlush.

Helga Guðrún byrjuð á Subway, verður þar með skólanum.

Júlía Katrín komin á Ugludeild. Er að fíla það í ræmur að vera með eldri krökkunum, saknar samt besta vinar síns sem fór á Hulduheima eftir sumarfrí hans Arnars Daða. Hún heldur samt áfram að byðja Guð að passa hann eins og svo marga(Pál Óskar og jólasveinana)eftir faðirvorið.

 

Lalli litli kom heim frá Grænlandi í kvöld, er búin að vera þar frá því á föstudag. Ferðin heppnaðist í alla staði vel og hann kom heim með fullan poka af vacumpökkuðum hreindýrastórsteikum, vona að kjötið sé betra en hann kom með í fyrra, mér fannst það bara ekki bragðgott!

 

 Minnti mig svolítið á hrefnukjötsógeðið sem við systkinin vorum stundum plötuð til að smakka...mamma sagði alltaf nautasteik!!!Angryég held að ég hafi aldrei borðað meir en þennan eina smakkbita í hvert skiptiSick.

 

Elsku kallin minn kom líka hlaðinn gjöfum eins og vanalega þegar hann kemur að utan, ég vona að Greenpeace sé ekki á landinu, hann keypti æðislega sætan jakka úr selskinni og hálsmen með rostungstönn handa JKL, 2 hálsmen handa ÍBL annað með bjarnarkló og hitt með rostungstönn, hreindýraskinns pennaveski handa HGÞ og selskinnstösku og mjÚÚÚkan selabangsa handa mérInLove

 

Hann var í bæ sem heitir ?Nassac? þar er bara ein búð sem selur svona túristadót og punktur!

 

Reyndar fékk hann að fara í fríhöfnina á Rvk.flugvelli og kaupa nammi og bjórkassaJoyful.

 

 

HeartVelkominn heim ástin mín og til hamingju með afmælið í dagHeart

júlí 07 009

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Josiha

Til hamingju með kallinn  Og til hamingju með að vera byrjuð að lesa þessa stórmerkilegu bók sem mun breyta lífi þínu!

Josiha, 22.8.2007 kl. 00:58

2 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Fékk hann ekki neitt? hann á þó afmælið. Til hamingju og kv. mamma.

Helga R. Einarsdóttir, 22.8.2007 kl. 15:33

3 identicon

Til hamingju með kallinn. Og ég verð að lesa þessa bók, sé talað um hana ALLSSTAÐAR!

Ninna (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 22:08

4 identicon

Ég vona það Lalla vegna að hann hafi ekki séð það sama og ég í Nassak.. það fyrsta sem ég sá var grænlendingur á stuttbuxum á 10 gira DBS hjóli.. það gjöreyðilagði mína ímynd á grænlendingnum í íshúsinu í hreindýra jakkanum og selskinnsskónum. Bölvaður bömmer það verð ég að segja.. En.. Vonandi smakkast Rúdolf vel..þ.e hreindýrið.. og til hamingju með daginn Lalli.. þú lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en ....uuu ...i samanburði við jólaveinana og grýlu ...ertu ungur kallinn..

Erla Björg og Vilberg (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 16:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dritað á plankann

Höfundur

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

 

 

Lestur þessi er alveg á þína ábyrgð,ekki er hægt að höfða mál við höfund síðunnar,verðir þú fyrir einhverskonar áfalli við lesturinn.Hverskyns bölv og ragn er með öllu óheimil,þó má gera undantekningu með óskiljanlegm dulyrðum. Góða skemmtun.

A.T.H. Nýtt póstfang:

guggasig@internet.is

MSN:

guggalugg@hotmail.com

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • des 08 080 copy copy
  • des 08 079 copy
  • des 08 078 copy
  • des 08 077 copy
  • des 08 072 copy
  • des 08 069 copy

Nýjustu myndböndin

Frænkurnar rokka

Júlía 2 hluti.

júlí 07 217

júlí 07 220

júlí 07 219

221 dagur til jóla

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband