8.5.2007 | 23:41
Drithöfðinginn hefur talað...
...og því kominn tími á nýtt drit.
Helga á núna bara eitt próf eftir, í dönsku,kláraði stæ. í morgun og kom alsæl heim úr því prófi. Eftir hádegi skrapp hún með Katrínu í Þolló að hitta Ragnheiði sem vinnur þar í golfskála???ég vissi ekki að það væri golfvöllur þar ???
Klukkan hálf sjö í kvöld hringdi hún svo í mig:
Helga: Hæ, ég var á spá hvort ég mætti fara með Loisu til Eyja núna? Dallurinn fer hálf átta.
Ég: uuuu...ha?
Helga: Ææææ okkur langar svo að gera eitthvað sniðugt.
Ég: hvenær kemur þú þá heim?
Helga: við gistum hjá mömmu hennar og komum svo aftur um hádegi á morgun.
Ég: hvenær fer "Dallurinn" á morgun?
Helga: -Kallar á Loisu"hvenær fer Dallurinn á morgun?"-Hann fer átta í fyrramálið,við tökum þá kannski seinni ferðina.
Týpískt af Þyrnirós að pæla í þessu.
Ég: Ókey eru þið með bíl?
Helga: Já og tjald...
Ég: uuuu.???? ...jamm...haldið ykkur fast og svo heyri ég í þér.
Helga: Já gerum það elska þig.
Ég: ég þig sömuleiðis, bæ...
Einstakur karakter þessi dóttir sem gefur lífinu ekkert nema bjarta liti.
Hvað ætli hafi orðið um Katrínu ? Bíllinn hennar er hér fyrir utan...laumufarþegi?
Um bloggið
Dritað á plankann
Færsluflokkar
Tenglar
Börnin á E38
DELLURNAR
í lífinu
DRITRÚNTURINN
skemmtiefnið mitt
Af mbl.is
Myndaalbúm
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já ég man þegar að ég var fimm ára og fór með mömmu að heimsækja Guðbjörgu sem bjó þá í blokk í Háenginu (ef ég man rétt) í minningunni er íbúðin full af basthúsgögnum?. Ég man allavega að mamma fór að heimsækja Guggu afþví að Helga var nýfædd. Ég man að það var búið að segja manni að hafa ekki hátt af því ég mætti ekki vekja Helgu. Svo man ég að ég koma að sjá þessa nýju frænku mína ,,langömmubarnið hennar ömmu Ninnu" og hversu bleikum galla hún var af því að hún var svo miklu blíðari en systir mín sem grét og grét (endalaust btw) Svo man ég líka hversu KÚL það var að heimsækja Guggu í Takkann ........... Það er alveg rétt þú átt góða dóttur. p.s. hvað er rétt af þessu sem ég man?
Zóphonías, 9.5.2007 kl. 00:00

Zóphonías, 9.5.2007 kl. 00:05
Sófi minn, þú færð fullt hús fyrir þetta
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 9.5.2007 kl. 00:20
Hahahaha...snilld hjá Helgu! Svona á maður að lifa lífinu - gera e-ð flippað Og mikið á hún góða mömmu sem treystir henni svona vel
Josiha, 9.5.2007 kl. 00:32
Mér þykir vænt um þig systir góð.
GK, 9.5.2007 kl. 01:43
Það var einmitt svona sem ég var alltaf að reyna á svipuðum aldri. Þá voru bara allar leiðir miklu lengri og svo er ég ekki frá því að það hafi verið haldið meira aftur af mér. Ég er ekkert viss um að það hafi verið betra. Ég verð alla ævina að sjá eftir einhverju sem ég gerði ekki. en hefði verið svo æðislega "brilljant".
Helga R. Einarsdóttir, 9.5.2007 kl. 09:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.