Færsluflokkur: Bloggar
22.8.2006 | 15:21
Hann á afmælí dag :)...
Þessi fallegi drengur á 35 ára afmæli í dag.
Til hamingju með daginn ástin mín
Sjáumst á Rauða húsinu í kvöld
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
20.8.2006 | 22:36
Rauðholtsgrill
Helga Guðrún með Dýrleifu Nönnu,Ívar Bjarki með Júlíu Katrínu og Urður með Unu.
Þarna eru fallegustu börnin saman komin í grillveislu í dag,ég á helminginn af hrúgunni og nokkur % af hinum helmingnum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.8.2006 | 23:09
Dauðakippir og hor
Við Lalli vorum að glæpast áðan,myrtum um 40 spikfeitar köngulær sem voru búnar að vera með ókeypis leigu utan á húsinu í allt sumar.
Ég sé svolítið eftir því að hafa drepið hana Hönnu,hún var búin að hanga fyrir utan sólstofudyrnar og spjalla við mig(eða ég við hana)svo horfðumst við bara stundum í augu,mjög notalegt.Farvel HannaI´ll miss you.
Það var annars virkilega gaman að sjá þær ranghvolfa augunum og engjast,síðan lamast í slow motion og að lokum dauðakippast.Lalli talaði fyrir þær,svona með "I see dead people"rödd,það var ekki síður skemmtilegt skemmtiefni.Við erum vonandi að fá málara í staðinn fyrir þær utan á húsið,fæ vonandi ekki gæsahúð að rekast utan í þá.
Það er kominn tími á að xtrím meikóva húsið,enda er það upplitað eins og grænt horSvona leikskóla vetrarhor.Næsta verk er að safna vefunum saman og sauma silkikjól á Grýlu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
13.8.2006 | 23:20
Halli vinur horfinn mér :(
Í gær varð mér það á að horfa á "það var lagið"...nei vá...ég hafði ekkert betra að gera!
Þar öttu kappi, Ryksugubandið eða Heimilisbrauðið,man ekki hvort?
Eitt lagið var hið ódauðlega "Tvær úr tungunum" það var textað.
Frá því ég heyrði lagið fyrst söng ég alltaf hástöfum"hundleiðar á hænsnunum og Halli vinur hééér" en nei,nei textinn var"og harðlífinu hér"!!! Hemmi takk fyrir að eyðileggja þetta fyrir mér,nú á ég engan Halla lengur :(
Vegna þessa harmleiks samdi ég ljóð til hans Halla míns:
Halli minn er horfinn miður,
það er Hemma góði siður,
farðu vel og með þér friður,
ég með harðlífi sturta niður.
Vertu sæll :' (
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.8.2006 | 01:03
prufa;)
jesss...þú ert náttlega bara yndi,bjargvætturinn minn ...sko Jóhanna
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.8.2006 | 00:37
Jæja...
Þá er það opinbert...ný síða að hætti josiha:)og henni til heiðurs,ætla ég að láta þetta fylgja svo hún geti æft sig að vera dónaleg við fólk
You know what I mean darling
Stilltu sjónvarpið þannig að allir verði grænir í framan. Segðu að þetta eigi að vera svona.
Hengdu þjófavarnarhnappa á föt fólks sem er að kaupa í matinn.
Fáðu lánaðar spennusögur og skrifaðu nafn morðingjanns á fyrstu síðu.
Kallaðu halló til bláókunnugs fólks sem er að labba hinumegin við götuna.
Vertu alltaf í appelsínugulum fötum.
Sestu við barborð og kláraðu allar smáveitingarnar (hnetur, snakk o.fl.) sem á því eru.
Borgaðu allt með krónum.
Endurtaktu allt sem aðrir segja eins og spurningu.
Labbaðu á milli borða inni á veitingahúsum og biddu fólk að gefa þér grænmetið.
Talaðu við sjálfan þig í strætó.
Hafðu alltaf kveikt á stefnuljósunum á bílnum.
Láttu hundinn þinn heita Hundur.
Spurðu fólk af hvaða kyni það sé.
Eltu einhvern með hreinsilög og þurrkaðu af öllu sem hann/hún snertir.
Ljúgðu þegar fólk spyr þig hvað klukkan er.
Ekki taka jólaljósin niður fyrr en í október. Hafðu kveikt á þeim allan tímann.
Breyttu nafninu þínu í Jón Aaaaaaaaaaaason og segðu að faðir þinn hafi verið grænlenskur. Segðu fólki að það eigi að það eigi að bera fram öll a-in.
Nagaðu alla penna og blýanta sem þú færð lánaða.
Syngdu með þegar þú ferð á óperu.
Biddu þjóninn um aukasæti fyrir "ósýnilega" vin þinn.
Spurðu fólk í kringum þig dularfullra spurninga og skrifaðu eitthvað í vasabók.
Spilaðu sama lagið 50 sinnum.
Búðu til "dularfulla hringi" í grasið í görðum nágranna þinna.
Segðu upphátt einhverjar tölur þegar afgreiðsufólk er að telja peningana.
Bókaðu þig á fund 31. september.
Bjóddu fullt af fólki í veislur annara.
dritgerð kveður :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Dritað á plankann
Færsluflokkar
Tenglar
Börnin á E38
DELLURNAR
í lífinu
DRITRÚNTURINN
skemmtiefnið mitt
Af mbl.is
Innlent
- Eldur kviknaði í bifreið í Mosfellsbæ
- Einn með bónusvinninginn
- Tilbúin að bregðast við skelli slæm sviðsmynd á
- Framkvæmdir fyrir alls tvo milljarða
- Við munum ekki hvílast fyrr en þetta klárast
- Þurfum að fá úr þessu skorið
- Við erum ennþá í fullum gangi
- Hraunflæði ógnar innviðum við Svartsengi
- Aðhald nægilegt þrátt fyrir 70 milljarða halla
- Verulegur framgangur og fjölmiðlabann í deilunni
Fólk
- Fyrsta stiklan úr Vigdísi
- Gert á kostnað brostinna hjarta
- Harry alltaf einn á ferð
- Diddy óskar eftir að losna í þriðja sinn
- Lítil spenna fyrir nýjustu þáttum Harry og Meghan
- Kom aðdáendum í opna skjöldu
- McGregor mætti fyrir rétt
- Ætlar að gera dagatal eins og slökkviðsliðsmennirnir
- David Walliams þurfti að bæta öðrum viðburði við
- Sagður eiga í ástarsambandi við mun yngri konu
Myndaalbúm
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar