1.11.2006 | 22:56
Watch out Copen...the glamourgirls are comming
Bara til að taka burt Sunnudags titil síðustu færslu,fel ég ykkur þetta verkefni sem þið getið glímt við til þriðjudags...vaaaandlega.
Ef þú ert að lesa þetta VERÐUR þú að kommenta,annars...já
Á meðan þið glímið við þetta ætla ég frá að hverfa til kóngsins Kaupmannahafnar ásamt góðri,óðri,fyndinni,skemmtilegri og fallegri vinkonu minni(vonandi lestu þetta ekki Vigdís)
Óskið mér lukku,þess óska ég ykkur.
Þetta er svona hlakkasvomikiðtildrit
Hilsen,Guðbjörg smörrebrödsdame på Islandsbrygge,med en öl.
Og hér kemur heimavinnan
1. Hvað kallarðu mig?
2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?
3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?
4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?
5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?
6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?
9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
11. Hvaða ár gifti ég mig,hvað var ég gömul þá ?
12. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
13. Hvernig stráka fíla ég?
14. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
15. Hvað er mest einkennandi við mig?
16. Hvaða búðir elska ég að fara í?
Bloggar | Breytt 2.11.2006 kl. 01:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.10.2006 | 22:40
Sunnudagur til Sælu-hlíðar
Við fórum að skoða nýja IKEA í dag.Flott búð skal ég segja og gott skipulag.Þar sem glösin á heimilinu voru orðin 30 og bara 2-3 af sömu gerð,keyptum við 44 glös í þremur gerðum og tíu grunna og tíu djúpa diska.Fengum okkur svo sænskar kjötbollur með sultutaui og komum svo við í Sæluhlíð í heimleiðinni.Eftir kaffi og meððí þar,fórum við heim að brjóta og bramla gamla leirtauið og glösin og þvo og koma því nýja fyrir,það var gaman.
Nú erum við búin að fá leyfi hjá Helgu að skipta um herbergi við Júlíu Katrínu,það er miklu hentugra að skipta,þá vekur Helga okkur síður með hurðarskell og hósta þegar hún kemur heim á nóttunni,og Júlía er nær okkur-ekki næstum því frammí stofu.Naflastrengurinn nær bara ekki þangað.En þar sem Júlíu herbergi er bara frímerki þarf stóra stelpan að rusla út heilmiklu í sínu og setja í geymslu.Það verður léttir
Nú eru sex dagar þar til ég fer til Köben með Vigdísi....vá hvað ég hlakka tilþetta verður æði-pæði ferð hjá okkur,held meira að segja að ég sé búin að heilaþvo hana nóg,til að fá sér tattoo
.
Hetja dagsins:Helga mín sem keyrði eins og herforingi í vinnuna í Eden í hálkunni
Þarna er fallegi frumburðurinn á eins árs afmælinu að taka nokkur skref...krúttið!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
26.10.2006 | 16:09
Snjór og kleinur
Það byrjaði að snjóa í gærkvöldi,um leið og ég sá það kallaði ég á MAX og við fórum út að pissa.Á meðan hann hitaði birkitréð,stóð ég,horfði upp og lét hundslappadrífuna bráðna framaní mér.
"Pissa meira"skipaði ég MAX þegar hann gerði sig líklegan að stinga mig af,og hann kreisti nokkra dropa á ljósastaurinn.
Svo gengum við Júlía Katrín á leikskólann eftir hádegið eins og vanalega,það var grenjandi rigning og slabb eftir því.
Hún gaf sér EXTRA langann tíma á göngunni,hoppaði í pollunum og slabbinu.Þegar við komum svo á leikskólann vorum við rennandi blautar,en hún var auðvitað í tilheyrandi hlífðarfatnaði frá toppi niður í tær.Leiksvæðið var gjörsamlega á floti í pollum,og börn með bros á vör.
Á heimleiðinni varð ég fyrir árás tveggja bíla undir stjórn bílstjóra,sem gerðu sér lítið fyrir og gáfu mér kaldar gusur á hægri hliðina,ég var bara ekki nógu snögg að snúa mér á vinstri hlið þegar seinni bíllinn kom.Ég var bara ekkert svakalega ofsalega reið,af því ég var svo blaut fyrir.Ákvað bara þarna á staðnum að taka þessari gjöf með brosi og gleðjast yfir svona óvæntum uppákomum...ekki bý ég í stríðshrjáðu landi eða við fátækt.
Þetta drit var um ekki neitt
Nýr liður:
Hetja dagsins:Setta nágranni minn var að koma með fullann poka af nýbökuðum kleinum,af því við máluðum smá hjá henni í sumar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.10.2006 | 16:01
Nýjar myndir...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.10.2006 | 23:51
Óstjórnlega fyndið!
Karlanámskeið
Athugasemd: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið.
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:
Fyrri dagur:
HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT?
Skref fyrir skref með glærusýningu.
KLÓSETTRÚLLUR, VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM?
Hringborðsumræður.
MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)
DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?
Pallborðsumræður, nokkrir sérfræðingar (konur).
AÐ TAPA GETUNNI
Að missa fjarstýringuna til makans, stuðningshópar.
LÆRA AÐ FINNA HLUTI
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi, opin umræða
SEINNI DAGUR
TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
Hópvinna og hlutverkaleikir.
HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNU AÐ GEFA HENNI BLÓM.
Power point kynning.
SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST
Sönn saga frá manni sem spurði til vegar.
ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?
Ökuhermir.
AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA
Fyrirlestur og hlutverkaleikir
HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni.
AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR
Komdu með dagatalið þitt í tímann.
AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR
Einstaklingsráðgjöf og samtöl
Bloggar | Breytt 22.9.2011 kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Um bloggið
Dritað á plankann
Færsluflokkar
Tenglar
Börnin á E38
DELLURNAR
í lífinu
DRITRÚNTURINN
skemmtiefnið mitt
Myndaalbúm
191 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar