Pirr !"#$%:(

Ég var að lesa blogg hjá góðri vinkonu minni sem þurfti að fara austur fyrir fjall og engu munaði að hún fengi bíl í andlitið sem kom á móti henni á hennar akrein.Hún þurfti að stoppa útí kanti,hringja í kærastann og brotnaði saman í símanum!

Úff ég fékk nú bara smá tár að lesa þetta,það er alveg hræðilegt hvað fólk getur verið kærulaust og óspart á sénsana sem geta breytt lífi fjölda fólks í einni svipan.Lalli fer þessa leið 2svar á dag og hefur gert sl. 15 ár, og er orðinn frekar sjóaður í svona sögum eins og hún var að segja...þetta gerist mjööög oft.Helmingurinn af bræðrum mínum ekur þessa leið líka daglega,þannig að mér er þetta mikið hjartans mál!Svona sögur þurfa að rata uppá borð hjá skilningslausum samgönguráðherra,sem heldur að allir séu glaðir og lífum þyrmt með göngum um öll fjöll.Þetta er auðvitað bara pjúra landsbyggðarpóliTÍK.Það þarf að ná atkvæðum frá þessum 10 á Ólafsfirði eða hvar í sveitinni sem þessi göng eru mokuð!Sveiattan!Ég er rosalega reið að tvöföldun sé ekki hafin...það er eiginlega ótrúlegt miðað við alla umferðina-sumarbústaðafólkið-sjúkrabílana-og alla þá sem vinna fyrir austan og í rvk. og keyra á milli.Hvað getum við gert til að mótmæla þessu á sem áhrifaríkastan hátt?? *púst* Hungurverkfall í tjaldi í garðinum hjá samgöngumálaráðherra?

Ojj... hvað ég er reið!

http://www.sudurlandsvegur.is/


Fjölnota...

...Jólagjöfin í ár 

Hér kemur ódýr og góð hugmynd af inniskóm.

Þú þarft:

  • Fjögur Maxi dömubindi til að búa til eitt par.
  • Tvö eru notuð sem sólar.
  • Hinum tveimur er vafið utanum tærnar.
  • Límið endana undir sólana.
  • Skreytið með því sem hugurinn girnist, silkiblómum o.þ.h.

Jólagjöfin í ár

  • Þessir inniskór eru mjúkir og þrifalegir.
  • Þeir eru stamir, það gerir límröndin á sólanum.
  • Ilmefnin í þeim gera fæturna alltaf ferska.
  • Nú þarf ekki lengur að beygja sig til að þurrka upp af gólfinu.

Njótið vel!


Kvaðning!

Nú bið ég alla ... já ALLA sem skoða að kvittaPolice.

20-30 heimsóknir á dag og alltaf þeir sömu fallegu 4-5 sem kvitta.

Komdu í hóp þeirra fallegu og KVITTAÐUPolice!

 

 


Æææ...mig auma:(

Litli unginn minn er floginn úr hreiðrinu,hún flaug inní næsta herbergi og sefur þar vært...ekkert "brjost og snudda"lengurCryingmamman er í rusli.

p.s. þeir sem eru að velta fyrir sér hvað "brjost og snudda"þýðir...þá er hún sko löngu hætt á brjósti,enda á fjórða ári.

Þarna er hún aaaaleinHeartnov 2006 003


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Dritað á plankann

Höfundur

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

 

 

Lestur þessi er alveg á þína ábyrgð,ekki er hægt að höfða mál við höfund síðunnar,verðir þú fyrir einhverskonar áfalli við lesturinn.Hverskyns bölv og ragn er með öllu óheimil,þó má gera undantekningu með óskiljanlegm dulyrðum. Góða skemmtun.

A.T.H. Nýtt póstfang:

guggasig@internet.is

MSN:

guggalugg@hotmail.com

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • des 08 080 copy copy
  • des 08 079 copy
  • des 08 078 copy
  • des 08 077 copy
  • des 08 072 copy
  • des 08 069 copy

Nýjustu myndböndin

Frænkurnar rokka

Júlía 2 hluti.

júlí 07 217

júlí 07 220

júlí 07 219

191 dagur til jóla

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband