Jólakveðja

Fjölskyldan Engjavegi 38 sendir lesendum þessarar síðu bestu óskir um gleðilega jólahátíð,þó 99% þeirra fái jólakort.Hafið það sem allra best.

 

17 júní06 043

                                             PAPPARASSAMYND FRÁ 17 JÚNÍCool

 

 

Þetta ætla ég að gera-mæli meðð´í Wink

 

Njóta og hrjóta með tær og bækur á lofti,

humma og tyggja matinn 100 sinnum,

knúsast og kyssa faðma og hrista,

leggjast á meltuna,hugsa og slugsa,

hitta vini,brosa,hlæja og hringja,

hlusta á kirkjuklukkur og fá gæsahúð,

vökva jólatréð og finna friðinn í kirkjugarðinum,

syngja og horfa á jólaljós,

þakka Guði fyrir hvað ég á góða að,

og hvað ég á gott líf.

P.S. Jóhanna varðandi síðustu færslu-man ekkert hvað ég var gömul þegar ég sá sveinka,örugglega 8-9 ára...og eitt enn vissir þú að Gummi fékk í skóinn ti 22 ára aldurs?Hann gleymdi að taka skóinn úr glugganum hjá M&P þegar hann flutti frá R-9,endaði með því að Kertasníkir stal honum(skónum) jólin '98

 

Hvað er þetta með hana Grýlu?...ófétið ...er hún dauð eða étur hún börn?
Þetta er virkilega að rugla Júlíu mína Katrínu,einn daginn lesum við sögu um að hún sé dauð og hinn daginn birtist hún á þakinu á Subway og vinkar henni :S.

Eru þetta tæknileg mistök eða lögreglumál?

 

Jólaknúsknús í kremju á allar elskurnar mínarKissing

 


Jólasveinar einn og tólf.

 

Giljagaur var annar,

með gráa hausinn sinn.

Hann skreið ofan úr gili

og skaust í fjósið inn.

 

Hann faldi sig í básunum

og froðunni stal,

meðan fjósakonan átti

við fjósamanninn tal.

Þessi kall skildi eftir sig verksummerki í nótt,einhverjum til mikillar ánægju.

Við Júlía Katrín enduðum Faðir vorið á því í gærkvöldi að biðja Guð að passa að Giljagaur yrði ekki kalt

"Guðbjörg,ertu sofnuð?"heyrði ég kallað...ég sagði ekki orð.Þetta er minningin mín þegar ég sá jólasveininn í 1. sinn.Með annað augað opið sá ég kallinn lauma góðgæti í skóinn minn,hálffúl að hafa ekki svarað og komast að því hvernig hann liti raunverulega út.Hvernig stóð á því að lyktin af skógóðgætinu var alltaf svona sérstök?...jólasveinalykt.En eftir alltsaman stóð þessi jólasveinn sig mjög vel hvar svo sem hann náði sér í þessa sérstöku lyktWoundering


sko bara...

13 dagar, 19 klukkustundir, 18 mínútur og 24 sekúndur til jóla

Vaaaáááá!

Var að koma af Frostrósatónleikum með Vigdísi,Urði og Einari...þvílíkt flottWizard.Að öðrum ólöstuðum var ég með gæsahúð niður í skósóla þegar Sissel,Eivör og Ragga sungu öll lögin sín.Sissel var "geðveik"þegar hún söng"Mitt hjerte altid vanker".Ragga á nú bara að hafa einkarétt á "Það á að gefa börnum brauð".Dívurnar voru allar rosalega flott klæddar,held ég allar í Spaksmannsspjörum. Lýsingin var frábær og við vorum í bestu sætunum,á efra svæði fremst fyrir miðjuCool.Urður hafði það sérstaklega gott með tærnar uppí frænku sinniTounge.

Takk fyrir boðið elsku Gummi minnKissing,átti að skila "Kissing"til þín frá Vigdísi.

Og svo allir að hlaupa og kaupa Frostrósir.


Halló!

Hana Jóhönnu mína bráðvantar far á Frostrósirnar ...seinni tónleikana.

Hafið samband ef þið vitið um farErrm


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Dritað á plankann

Höfundur

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

 

 

Lestur þessi er alveg á þína ábyrgð,ekki er hægt að höfða mál við höfund síðunnar,verðir þú fyrir einhverskonar áfalli við lesturinn.Hverskyns bölv og ragn er með öllu óheimil,þó má gera undantekningu með óskiljanlegm dulyrðum. Góða skemmtun.

A.T.H. Nýtt póstfang:

guggasig@internet.is

MSN:

guggalugg@hotmail.com

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • des 08 080 copy copy
  • des 08 079 copy
  • des 08 078 copy
  • des 08 077 copy
  • des 08 072 copy
  • des 08 069 copy

Nýjustu myndböndin

Frænkurnar rokka

Júlía 2 hluti.

júlí 07 217

júlí 07 220

júlí 07 219

191 dagur til jóla

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband