Þetta form...

...lítur út fyrir að vera aðgengilegt,ætla að prufa.

Kommentakerfið á því gamla minnir mig alltaf á mauraþúfu.

Þetta útlit vann verðlaun í einhverri lúkk-keppni ....er hér að ofan sem hamstur.is

Há dú jú lækitt?"maurarnir mínirBlush


Heitur pottur

Í kvöld bjó ég til ítalska grænmetissúpu,sem kom íbúum E38 skemmtilega á óvart,"grænmetissúpa" ...sándar ekki mjög spennandi en ilmurinn var það lokkandi að allhörðustu matvendingarnir skelltu fésunum á kaf í hvítt leirtauið...

...Hér er oppskripten sem ég skora alla á að prófa,ég er lítið gefin fyrir dl.og tsk. stóla frekar á smakk,slurk og handfylliTounge.

1 laukur smátt skorinn,

3-4 gulrætur í bitum,

1-2 sellerístilkar í bitum,

3-4 eða 5 kartöflur skrældar og skornar í lille bitsSideways

1/2 höfuð af blómkáli skorið í bita

2-6 hvítlauksrif marin undir hníf eins og pöddurPinch

ólifíluolíaLoLslurkur til steikingar,

1 og 1/2 -2 lítr.vatten from þe krein(kóld off kors)

grænmetisteningar 3-5 (smakkist til)...sko á eftir!

400 gr niðursoðnir tómatar í bitum (dósin er 411gr.Tounge)frystið afganginnLoL

3-4 msk tómatpasta,ææ...svona lítil niðursuðudós í bleikagrísbúðinni.

svartur pipar ca.6 snúningar úr kvörn og 3 snú. af salti,farið varlega með þetta þið handstóru!

3 lúkur af pastaskrúfum eða fiðrildum eeeða penne,líklega ein lúka hjá ykkur handstóruWink

Olía í STÓÓran pott, laukur og hvítlaukur léttsteiktur,allt grænmetið sett í pottinn og leyft að ylja sér í 3-5 mín.

Bætið í fersku bergvatni og teningum,tómötum og tomatpaste-inu.Alveg róleg í smakkinu!Grin.

Sjóðið við vægan hita í 30 mín.bætið pastanu útí og sjóðið áfram í 10 mín.

Saltið og piprið...smakkiðGrin

kannski aðeins meiri pipar...smakkiðGrin

örlítið meira af krafti kannski?...smakkið.

Þeir sem vilja saxaða steinselju eða parmesanost útá,verið óhrædd...það máLoL

Gott að hafa hvítlauksbrauð og rammískalt vatn með þessu.

Auðvitað má líka nota það sem til er í ísskápnum,t.d.papriku og brokkoli,ég er ekki að meina skyr eða trópíLoL.

Verði ykkur að góðu.

 


Þrettándinn þrotinn.

Í kvöld komu Sæluhlíðarbúar í mat til okkar,lambalæri og purusteik Tounge.

 

jan 07 005

 

 Í eftirmat var slegist um afgangs-puruna sem fylgdi 6 kílóum af kjöti

 

jan 07 015

Svo ultu allir út í snjóinn og nokkrar tertur voru sprengdarGrin.

Á þrettándabrennunni var mikið af fólki og öðrum kynjaverum,Júlía Katrín og Þorsteinn Már kvöddu jólasveinana og hún knúsaði meira að segja einn bless.En þegar Hurðaskellir tók hana í fangið og sagði"nú kemur þú með mér heim"brast mín í grát,hún veit nefnilega alveg hvað bíður þeirra heima.Ég sagði svo við hana að hann væri bara skotinn í henni,hún væri allt of góð fyrir þessa fjölskylduHalo.

Mér þótti sveinarnir frekar mjóir þetta árið,vonandi bíður þeirra fitun í fjöllunum.Aumingja Stekkjastaur átti líka virkilega erfitt um gang.

Næst á dagskrá er að kassa jólin,fúlt þegar jólasnjórinn er loksins kominnFrown.

 


En gaman :)

Halla mín ætla að fá þennan bíl lánaðan og kíkja í kaffi til þín sætaWink
mbl.is Sektaður fyrir að aka á „675 km hraða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú árið er liðið í aldanna skaut...

...og aldrei það kemur til baka. 

Gleðilegt ár allir og takk fyrir það gamla.Nú get ég sagt"ég verð fertug á næsta ári...vívíví...Wizard

 

    2007

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Dritað á plankann

Höfundur

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

 

 

Lestur þessi er alveg á þína ábyrgð,ekki er hægt að höfða mál við höfund síðunnar,verðir þú fyrir einhverskonar áfalli við lesturinn.Hverskyns bölv og ragn er með öllu óheimil,þó má gera undantekningu með óskiljanlegm dulyrðum. Góða skemmtun.

A.T.H. Nýtt póstfang:

guggasig@internet.is

MSN:

guggalugg@hotmail.com

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • des 08 080 copy copy
  • des 08 079 copy
  • des 08 078 copy
  • des 08 077 copy
  • des 08 072 copy
  • des 08 069 copy

Nýjustu myndböndin

Frænkurnar rokka

Júlía 2 hluti.

júlí 07 217

júlí 07 220

júlí 07 219

192 dagar til jóla

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband