9.1.2007 | 23:56
Heitur pottur
Í kvöld bjó ég til ítalska grænmetissúpu,sem kom íbúum E38 skemmtilega á óvart,"grænmetissúpa" ...sándar ekki mjög spennandi en ilmurinn var það lokkandi að allhörðustu matvendingarnir skelltu fésunum á kaf í hvítt leirtauið...
...Hér er oppskripten sem ég skora alla á að prófa,ég er lítið gefin fyrir dl.og tsk. stóla frekar á smakk,slurk og handfylli.
1 laukur smátt skorinn,
3-4 gulrætur í bitum,
1-2 sellerístilkar í bitum,
3-4 eða 5 kartöflur skrældar og skornar í lille bits
1/2 höfuð af blómkáli skorið í bita
2-6 hvítlauksrif marin undir hníf eins og pöddur
ólifíluolíaslurkur til steikingar,
1 og 1/2 -2 lítr.vatten from þe krein(kóld off kors)
grænmetisteningar 3-5 (smakkist til)...sko á eftir!
400 gr niðursoðnir tómatar í bitum (dósin er 411gr.)frystið afganginn
3-4 msk tómatpasta,ææ...svona lítil niðursuðudós í bleikagrísbúðinni.
svartur pipar ca.6 snúningar úr kvörn og 3 snú. af salti,farið varlega með þetta þið handstóru!
3 lúkur af pastaskrúfum eða fiðrildum eeeða penne,líklega ein lúka hjá ykkur handstóru
Olía í STÓÓran pott, laukur og hvítlaukur léttsteiktur,allt grænmetið sett í pottinn og leyft að ylja sér í 3-5 mín.
Bætið í fersku bergvatni og teningum,tómötum og tomatpaste-inu.Alveg róleg í smakkinu!.
Sjóðið við vægan hita í 30 mín.bætið pastanu útí og sjóðið áfram í 10 mín.
Saltið og piprið...smakkið
kannski aðeins meiri pipar...smakkið
örlítið meira af krafti kannski?...smakkið.
Þeir sem vilja saxaða steinselju eða parmesanost útá,verið óhrædd...það má
Gott að hafa hvítlauksbrauð og rammískalt vatn með þessu.
Auðvitað má líka nota það sem til er í ísskápnum,t.d.papriku og brokkoli,ég er ekki að meina skyr eða trópí.
Verði ykkur að góðu.
Um bloggið
Dritað á plankann
Færsluflokkar
Tenglar
Börnin á E38
DELLURNAR
í lífinu
DRITRÚNTURINN
skemmtiefnið mitt
Myndaalbúm
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hljómar vel. Má ekki setja sýróp í þetta?
GK, 10.1.2007 kl. 00:19
Ohhh ég er svooo svöng núna!
Josiha, 10.1.2007 kl. 01:26
nammnamm líst vel á þessa matartengingu á þessu bloggi...var afgangur af purusteik, læri og grænmetissúpu????Er að hugsa um að kíkja í mat fljótlega;-) Var að fatta að ég þjáist af matarást á þér ljúfust mín! Knús og mannnge kyss.
Halla (IP-tala skráð) 10.1.2007 kl. 11:29
Ég bjó í dag til æðislega fiskisúpu, er hægt að stofna uppskrifta - skiptimarkað?
Helga R. Einarsdóttir, 14.1.2007 kl. 22:15
Vá hvað þetta hljómar vel... *slurp* ég fæ alveg vatn í gogginn...
Ninna (IP-tala skráð) 15.1.2007 kl. 19:02
prófa þetta nammi namm
Ólafur fannberg, 15.1.2007 kl. 23:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.