Hún sver sig í ættina.

 Júlía Katrín er veik heima með hita og hálsbólgu, þetta er í fyrsta skipti frá því tappað var af eyrunum og nefkirtlar voru teknir í Mars að hún veikist. Hún var frekar lítil og heit í gær en er hressari í dag og nærri hitalaus. Alltaf þegar krakkarnir veikjast sæki ég glaðning í búðina. Fyrir valinu í dag var leiguspólan Skoppa og Skrítla í Þjóðleikhúsinu. Henni finnst þær æðislegar þó hún hafi bara séð 1 og 1 lag með þeim í sjónvarpinu. Mér finnst þær nú frekar smábarnalegar en það er allt í lagi, þær eru fallegar og góðar. Ég horfði nú ekki á með henni en í miðri mynd tekur Júlía Katrín uppá því að bresta í skellihlátur...þá meina ég kafnúrhlátri!. Stuttu síðar heyrist í Skoppu : "Skrítla varstu að prumpa?" þetta hláturkast sannaði það að hún er með hinn eina sanna FlúðafrethúmorLoL.

 

Skamm Géorg brúskur!

                                                       *Hot news*

 

Helga var að hlusta á Edith Piaf áðan þegar heyrist í Júlíu : Hey þetta er lagið sem mýsnar syngja í Badda grís Smile...spáið í það franskt lag sem er sungið af músum á eldgamalli vídeóspólu. Gáfurnar fljóta hér um eins og Þjórsá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Zóphonías

ég var aldrei í efa

Zóphonías, 6.11.2007 kl. 18:12

2 Smámynd: Josiha

Dúllan!  Vona að henni batni sem fyrst.

Josiha, 6.11.2007 kl. 19:28

3 identicon

Hún er líka systir mín

Og Orri.. hehe..held ég viti hvað þú átt við

Helga Guðrún (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 22:08

4 Smámynd: Josiha

Helga, þú ert líka dúlla!

Josiha, 6.11.2007 kl. 22:14

5 identicon

HAHAHAHA Þetta kemur nú ekki á óvart... maður er doomed til að finnast prump fyndið ef maður er í Flúðafjölskyldunni!

Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 23:23

6 Smámynd: Zóphonías

ég vil taka fram að lyktin sem ása ninna framleiðir er fræg í mörgum landshlutum

Zóphonías, 7.11.2007 kl. 00:28

7 identicon

Hvað á það að þýða??? Bara á Selfossi, Laugarvatni og smá Reykjavík... það er ekkert svakalegt! Og ég framleiði mjög góða lykt. Því ef maður prumpar fallega þá kemur góð lykt - og ég prumpa bara fallega!

Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 00:56

8 Smámynd: Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

Hahaha...Orri:ertu að halda því fram að Ninna komi reglulega við í Hveragerði og Hellisheiðarvirkjun og skilji eftir sig "góða lykt"?

Jamm hún er svo fræg og góð að það fellur á silfrið í Þorlákshöfn....

****ps.**** Júlíu Katrínu er batnað, hún er á leikskólanum .

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 7.11.2007 kl. 16:19

9 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Skoo - ég er ekki í þessari ætt. En það sagði mér stelpa í skólanum í dag hvers vegna Hveragerði héti  H----gerði: Þegar Ingólfur Arnarson var að leggja af stað frá Ingólfsfjalli ( þar sem hann bjó á meðan verið var að  leita að súlunum) til Reykjavíkur ( þá var búið að finna þær) og nálgaðist reykspúandi kverkina handan við fjallið, þá fann hann megna skítalykt.  Ingó kannaðist við lyktina, en fannst hún samt með allra svæsnasta móti og varð forvitinn. Hver gerði? spurði hann - en enginn svaraði. Þeir voru vissir um að hann væri að gefa staðnum nafn og voru bara ánægðir með það.

Helga R. Einarsdóttir, 7.11.2007 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dritað á plankann

Höfundur

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

 

 

Lestur þessi er alveg á þína ábyrgð,ekki er hægt að höfða mál við höfund síðunnar,verðir þú fyrir einhverskonar áfalli við lesturinn.Hverskyns bölv og ragn er með öllu óheimil,þó má gera undantekningu með óskiljanlegm dulyrðum. Góða skemmtun.

A.T.H. Nýtt póstfang:

guggasig@internet.is

MSN:

guggalugg@hotmail.com

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • des 08 080 copy copy
  • des 08 079 copy
  • des 08 078 copy
  • des 08 077 copy
  • des 08 072 copy
  • des 08 069 copy

Nýjustu myndböndin

Frænkurnar rokka

Júlía 2 hluti.

júlí 07 217

júlí 07 220

júlí 07 219

200 dagar til jóla

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband