16.9.2007 | 02:07
Yfirlit og yfirheyrsla...
Sit hér á L.kveldi og á með eldri dóttur minni "vellukkaða leiðindastund" eins og presturinn sagði.
Við Ívar Bjarki fórum og horfðum á flugeldana hans Kjartans áðan, það var tilkomumikið.
Í dag fórum við Lalli með litla barnið á mótorhjólasýningu og í Landbúnaðarbíó, tókum ömmuna áður með í Tryggvaskála þar sem amman keypti fjóra tombólumiða handa JKL til styrktar Björgunarsveitinni, JKL fékk fjögur tréskilti eða "trédrasl" eins og hún kallaði það. Styrkveitingin yljaði samt ömmunni um hjartarætur.
Nú er Lalli litli á Players að hitta fólkið sem hann umgekkst fyrir tuttugu árum á Hlíðardalsskóla, hann ætlar að sofa úr sér í Sæluhlíð og mæta svo ferskur með mér í kaffihlaðborðið á morgun.
Nú bíð ég eftir jarðskjálfta eða innbrotsþjóf, það gerist alltaf eitthvað skrítið þagar Lallinn er ekki heima.
Svona til að drepa timann ætla ég að taka þetta nördapróf sem er á Tuttebra síðunni:
1. What's in the back seat of your car? Barnabílstóll og brauðmylsna
2. When was the last time you threw up? Spjótkastskeppnin júní 1985
3. What's your favorite curse word? Halli á Hóli
4. Name one person who made you smile today? Júlívalga (júlíaívarhelga)
5. What were you doing at 8am this morning? dreymdi að ég væri fluga á formúlubraut.
6. What were you doing 30mins ago? opnaði Corona öl
7. If you could marry any celebrity today, who would it be? Mr.BEAN!
8. Ever been to a strip club? Hell je, einu sinni 1993 ala Vegas...vegan áskorunar.
9. What is the last thing you said out loud? Já, mjög flott.
10. What is the best ice cream flavor? lítill hvítur með jarðabejum og heitri karamellu sósu
11. What was the last thing you had to drink? Uhhh Corona
12. What are you wearing right now? Svört mangopeysa,gallabuxur,sokkar, inniskór, nærföt...mér er kalt.
13. Last food you ate? Kókosbolla.
14. Have you bought any new clothing items this week?Nei.
15. When was the last time you ran? Undan geitungi í gær...Helga hetja drap hann.
16. What was the last sporting event you watched? Íþróttafréttir á rúv... í kvöld ...óvart!
17. Last movie you saw? Sænska mynd í gær.
19. Do you like sushi..? Uuuuu já já ...verður að vera wasabe og soja með!
20. Do you have a tan?. Jamm smá Dove brúnkukrem.
21. Do you drink soda from a straw? Neibb of kellingalegt.
22. What did the last text you received say? Ha ha ha og broskall....frá Örnu í kveld.
23. Are you someone's best friend? Já...veit það!
24. Where's your mom right now? Sofandi vonandi hjá pabba mínum.
25. What color watch are you wearing? Wear ekki watch
26. What do you think of when you think of Australia? Ástralíunegrar
27. Ever been on a roller coaster? Nei og mun ekki!
28. What is your birthstone? Opal
29. Do you eat in a fast food restaurant or do you just hit the drive thru? sittlítið af hvoru,einstakasinnum.
30. Do you have a dog? Stekkjadals Max labbakút...
31. What does the first memory of your sister involve? "Systir" mín heitir Jóhanna ég tók fyrst eftir henni þegar hún var að labba á hótelplaninu á leið í vinnuna í verslunina MAÍ held ég...féll fyrir henni og eignaðist hana.
32. What's the biggest annoyance in your life right now? Ekkert!
33. Who was your last phone call? Helga af Subway:"viltu sjóða fyrir mig pasta, ég er að koma"
34. Are you allergic to anything? hveitiryki
35. What are your favorite pair of shoes you wear all the time? Svört stígvél og ecco inniskór
36. One thing you learned about life recently? Alltaf að læra í lífsins skóla.
37. Are you jealous of anyone? nei fullkomnlega sátt
38. Do you own an ipod? Já nota hann aldrei
39. Do you have any friends with children? Vildi að þessi spurning væri "no children"
40. What do you work as? Uppeldingur
41. Do you hate anyone? nei...það er vont að hata, ég vorkenni sumum...
42. How old will you be on your next birthday? ári yngri en 40
43. How did you get one of your scars? ég er bara með eitt ör á vinsti þumalfingri, rak mig í eldavélina hjá ömmu Ninnu þegar ég var lille...yngri!
14.9.2007 | 15:25
Við Demi eigum við sama vandamál að stríða...
11.9.2007 | 23:00
Emil Vilbergsson...
...velkominn í heiminn elsku litli frændi, til hamingju Erla og Villi
11.9.2007 | 22:47
Dónar nr. 1,2,3,4,5,6 og sjö!!
Fór í stórinnkaup í dag í Bónus, þegar ég var komin í röðina að bíða eftir afgreiðslu voru tveir kassar í gangi og ca. 6 að bíða í hvorri röð. Kona sem ég þekki var sú sjötta í hinni röðinni með fulla körfu. Einn pólverji var fyrir framan hana með litla körfu og fljótlega ruddist annar slíkur framfyrir hana til hans með nokkrar vörur undir hendinni. Við litum á hvora aðra og ranghvolfdum augunum.
Raðirnar siluðust áfram og þá allt í einu ruddist sá þriðji fram fyrir hana með fulla kerru af vörum, honum fannst bara ekkert að því! Konan sagði við hann "no,no you have to go back" en hann þóttist ekkert skilja. Hún reyndi að tjá sig eitthvað frekar(kurteisislega)...en nei hann þóttist ekki skilja NO einu sinni. Hún gafst upp og sagðist bara ekki nenna að standa í einhverju rugli.
Þvílík endemis frekja í þessu liði. Ég var á leiðinni út þegar hún var að byrja að setja vörur á borðið hún var orðin allt of sein að sækja á leikskólann. Skí****kk !!!
ALDREI skal ég fá mann frá Lagnaþjónustunni inn fyrir mínar dyr.
7.9.2007 | 00:29
Ég er komin með vinnukonu...
...hún er náhvít og búttuð með eitt stór auga, það fer ekki mikið fyrir henni, og hún er gjörsamlega hljóðlaus! Þannig vil ég hafa vinnukonurnar á heimilinu, næg eru lætin í þeim sem eiga hér lögheimili að þessi bætist ekki við!
Fann hana á netinu og bað Lalla að sækja hana í gær. Lalli hringdi svo í mig og sagði að hún væri komin í skottið hjá MAX alsæl og ljómandi, síðan þá hefur hún verið í stanslausri vinnu, ég gef henni ekkert breik.
Hún tekur 7 kg. af þurrum þvotti!!!
Gamla vinnukonan gafst upp, hún höndlaði ekki misnotkunina frá 36 táfýlusokkum af tuðrufélaginu Árborg. Blessuð sé minning hennar.
Um bloggið
Dritað á plankann
Færsluflokkar
Tenglar
Börnin á E38
DELLURNAR
í lífinu
DRITRÚNTURINN
skemmtiefnið mitt
Myndaalbúm
339 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar