15.3.2007 | 18:37
Húsið...
...angar af kjötsúpu.
Þeir voru að tala um nýjung í Reykjavík síðdegis í gær,matarlykt í ilmvatnsformi.
Kannski maður fái sér kjötbollu eða slátur-ilm og gefi Lalla aspasgubb-ilm.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.3.2007 | 23:28
Sprettinn herti...not!
Ahh...verð bara að segja frá ferð minni í Hagkaup í dag. Fórum að versla grjónapúða til að hafa inni hjá JKL við kvöldlesturinn. Svifum um búðina og góndum í allar áttir eftir þessum risum. Allt í einu rak ég augun í þá hangandi fyrir ofan skóna. Plöntuðum okkur þar og biðum eftir afgreiðslu,þar sem okkar púði var hvergi sjáanlegur nema í háloftunum...loks kom einhver lúði með brettatrillu í eftirdragi:
Ég:getur þú reddað okkur einum svona púða*bendi á 'ann*?
Lúði:Ha...já,ég held að þeir séu á lager...héddna*klór í haus*...kassastelpan reddar því örugglega.
Við ákváðum að kassastelpan myndi ekki redda því og gripum næstu lúðu í Hagkaupspeysu.
Ég:getur þú reddað okkur einum svona púða*bendi á 'ann*?
Lúðan:Öööö...já ég þarf bara að hringja og athuga það*hringir og FER!
...10 mínútum síðar kemur hún:þeir eru bara búnir þessir.
Ég:getum við þá fengið þennan!
Lúðan:Öööö...já örugglega,kallar á strák og biður hann að ná í stiga.
Strákurinn:Ahhh...af hverju þarf ég að gera það "ríkur" í burtu á hraða snigils.
...10 mín.síðar kemur hann með stiga undir hendinni,klórar sér heillengi í hausnum vegna allra stóru púðanna fyrir neðan okkar púða.Fer svo að færa púðana til með litlum látum,klifrar upp og losar púðann.Þessi ferð í hagkaup að kaupa 1 hlut tók 45 mín.um það bil.
Þjónustulundin er alveg að drepa þetta lið!
Eftir allt þetta umtal um lúður og lúða kemur ein bullvísa:
Í sjónum lúðan rennir sér
og hittir furðufiska
þar til í neti lendir hér
og leggst á okkar diska.
Í maga lendir gleði veldur
og dvelur þar um tíma
áfram sinni ferð heldur
í myrkri fer að stíma.
Gæist út um gatið ljóta
þar sem sólin ekki skín
dettur niður fer að þjóta
áleiðis aftur heim til sín.
Niður ána flýtur fljótt
með skítabragð í munni
týnist svo í hafið hljótt
allt byrjar nýtt frá grunni.
Góðar stundir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.3.2007 | 14:28
Tók...
...hana mágstúlku mína til fyrirmyndar og læsti blogginu,líður mikið betur að vita það að hinir og þessir,aðrir,ókunnugir og jafnvel glæpónar viti allt um mig og mína.
Það hefur hægt aðeins á frásagnargleðinni að vita af þessu.
Þú mátt samt hanga hérna "kafari"ég held að þú sért bestaskinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.3.2007 | 23:45
Hvernig í ósköpunum...
...fór hún að þessu?
Þvílík leikni!
![]() |
Bakkað yfir tré á Skólavörðustíg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.3.2007 | 20:08
Draumurinn rættist loksins:)
Lét verða af því að kaupa mér kennsluefni og gítar...og engann smá gítar sko,Seagull eins og James Blunt á...nú ætla ég að vera rosa duglega að æfa mig,þá get ég boðið James í tónleikaferð um vestfirði í sumar.
Hér er gripurinn:
http://www.seagullguitars.com/productentouragerustic.htm
Bubbi hvað?"
********************************
UPPFÆRT
X-FACTOR
Jógvan-Jegvann.....laaaangbestur!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Dritað á plankann
Færsluflokkar
Tenglar
Börnin á E38
DELLURNAR
í lífinu
DRITRÚNTURINN
skemmtiefnið mitt
Myndaalbúm
193 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 30168
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar