11.4.2007 | 16:48
Síminn...
...hringdi...Júlía Katrín svaraði:pabbi síminn, þegar símtalinu lauk tjáði hann mér að hann hefði sest ofan á tölvuna MÍNA sem lá á sófanum "ala ÍBL"og brotið skjáinn .
Það eru þrjár vikur síðan hann keypti sér tölvu og þessi varð MÍN heittelskaða óskipta. Aumingja kallinn minn fór allveg í rusl yfir þessu og var duglegur að minna mig á ónýtu tölvuna mína allt gærkvöldið .
Skildi vera hægt að fá nýjan skjá á tölvu?
Þarf að sjá nýju myndina með herra Baun
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
2.4.2007 | 23:42
Hundsvit
Lalli segir mér oft frá vinnudeginum eins og heilbrigðu hjónabandi sæmir. Alltaf finnst mér skemmtilegastar sögurnar þegar MAX á í hlut. Um daginn voru Lalli og co. að brjóta þakkant í Stangarholti OG MAX bundinn við vinnuskúrinn í ca. 5 metra línu,eitthvað leiddist honum og tók þá upp á því að stríða einhverjum vinnuflokk sem var að vinna þarna við handmokstur... sko,þegar þeir sáu ekki til laumaðist hann og stal skóflunum þeirra,svona gekk þetta allan daginn.
Og í dag aftur í Stangarholti byrjaði hann að urra og gelta,sem hann gerir bara þegar hann sér skrítið fólk...öðruvísi fólk en hann sér vanalega(hann þekkir nebbla ekki skrítið fólk!)Lalli reyndi að sussa á hann en ekkert gekk...hann urraði bara,þá fór Lalli að spá hvaða stælar þetta væru og leit í áttina sem MAX horfði í, þar uppi á svölum gekk kall fram og til baka með göngugrind og skíðagleraugu.
Nú erum við að kenna honum að"vera sætur"þá situr hann með frammloppurnar upp við bringu.Hann er bara svo mikill hlunkur að hann á erfitt með að halda jafnvægi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.3.2007 | 22:30
Sko hann!
Gáta:
Þegar Birgir kemur til Paradísar sér hann að þar eru allir allsnaktir. Hann þekkir engann fyrr en hann kemur auga á karl og konu út í horni og flýtir sér til þeirra. Komið þið sæl Adam og Eva, segir hann. Ég hef aldrei hitt ykkur en ég sé þó greinilega að þetta eruð þið. Hvernig gat hann séð það?
Adam...va slags eple er detta?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.3.2007 | 14:27
Búin með lobbuna hans Lalla...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.3.2007 | 17:51
Heyrnarskert.
Við Júlía Katrín vorum að koma úr rvk. Vorum hjá Einari Thor. h,n,e lækni,hún er eins og ég vissi með kolstífluð eyru og fer í nefkirlatöku og hljóðhimnuástungu á mánudaginn.Þetta er létt svæfing og tekur aðgerðin ekki nema 10-15 mín.Ekkert skrítið að barnið heyri illa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Dritað á plankann
Færsluflokkar
Tenglar
Börnin á E38
DELLURNAR
í lífinu
DRITRÚNTURINN
skemmtiefnið mitt
Af mbl.is
Myndaalbúm
195 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar